LOCAL lögmenn er viðurkenndur úttektaraðili fyrirmyndarfyrirtækja í stjórnarháttum
LOCAL lögmenn hafa hlotið staðfestingu sem viðurkenndur úttektaraðili fyrirmyndarfyrirtækja í stjórnarháttum. Rannsóknarmiðstöð í stjórnarháttum við Háskóla Íslands hefur lagt mat á hæfi LOCAL lögmanna til að annast slíkt úttektarferli. Verkefnið er unnið í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, NASDAQ OMX á Íslandi og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands.