Verktakaréttur og fasteignamál

Skoða öll starfssvið

Verkefni LOCAL lögmanna á sviði verktakaréttar hafa farið ört vaxandi undanfarin ár og hópur viðskiptamanna okkar á því sviði sömuleiðis. Lögmenn stofunnar veita verktökum og verkkaupum alhliða ráðgjöf á öllum stigum máls, allt frá liðsinni í viðræðum við gagnaðila á upphafsstigi, undirbúningi og gerð verk- og fjármögnunarsamninga og úrlausn ágreiningsmála, eftir atvikum fyrir dómstólum.

Auk víðtækrar þekkingar á lagaumhverfi verktaka býr stofan að öflugum tengingum við fjármögnunaraðila sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.

Fagleg og skilvirk ráðgjöf sérfræðinga stofunnar er ekki síst mikilvæg á sviði verktakaréttar þar sem undirliggjandi hagsmunir eru gjarnan verulegir og skjót viðbrögð oftast nauðsynleg vegna strangra tómlætisreglna sem einkenna lagaumhverfi verktaka og verkkaupa.

Jafnframt er brýnt að verktakar hafi í gildi fullnægjandi vátryggingar til að verja reksturinn fyrir hugsanlegum áföllum sem annars geta reynst dýrkeypt. Sérfræðingar LOCAL lögmanna veita liðsinni við val á viðeigandi vátryggingum og sinna hagsmunagæslu þegar ágreiningur rís um réttindi úr vátryggingum.

LOCAL lögmenn hafa um langt skeið sinnt fjölbreyttum verkefnum er varða fasteignir. Meðal verkefna á því sviði eru gerð kaup- og leigusamninga, úttektir á húsnæði á grundvelli húsaleigulaga og úrlausn gallamála í fasteignum, hvort sem er með samningaviðræðum eða fyrir dómstólum. Lögmenn stofunnar hafa margra ára reynslu af rekstri flókinna dómsmála og öflunar matsgerða fyrir dómi vegna fasteignamála. Þekking LOCAL lögmanna á þessum málaflokki og vönduð vinnubrögð tryggja örugga hagsmunagæslu fyrir okkar viðskiptavini.

Gunnlaugur Garðarsson

Lögmaður

Guðrún Bergsteinsdóttir

Lögmaður